
Föstudaginn 23.september var starfsdagur hjartateymis á Reykjalundi. Dagskráin hófst á erindi og verkefnavinnu um teymisvinnu og hvað þarf að vera til staðar til þess að teymisvinna virki. Maggý félagsráðgjafi teymisins leiddi þessa vinnu og ætti hún fullt erindi inn á borð allra starfsmanna Reykjalundar, þar sem Reykjalundur byggir jú starfsemi sína á teymisvinnu.
Eftir þetta var farið yfir áherslur varðandi næringarfræðslu til sjúklinga teymisins. Þessu næst var haldið á LSH við Hringbraut, m.a. til að efla samstarf við hjartadeildir spítalans. Fengum við þar fræðslu um gangráða og bjargráða og kynningu á því starfi sem fram fer á göngudeild hjartalyflæknisdeildar og eins á hinni nýlegu göngudeild fyrir hjartabilaða. Eftir þetta fór svo teymið saman í gönguferð, því við erum öll sannfærð um að hreyfing bætir og kætir.