Vísindasjóður Reykjalundar fær framlag frá SÍBS

Vísindasjóður Reykjalundar var stofnsettur á síðasta ári. Á sama tíma samþykkti stjórn Reykjalundar  reglur um vísindarannsóknir starfsmanna Reykjalundar. Nýlega ákvað stjórn SÍBS að leggja fram 2.000.000 króna í sjóðinn. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum verður á vísindadegi Reykjalundar árið 2006.