Gjöf frá Kvenfélagi Kjósarhrepps

Gjöf

Sunnudaginn 14. mars sl. hélt Kvenfélag Kjósarhrepps hátíðlega
upp á 70 ára afmæli félagsins með
hátíðardagskrá og kaffisamsæti. 
Í tilefni af afmælinu færði félagið sjúkraþjálfunardeild Reykjalundar höfðinglega gjöf
sem var 300 þúsund krónur til kaupa á nýjum meðferðarbekk. 
Starfsmenn frá sjúkraþjálfunardeild
veittu gjöfinni viðtöku í afmælishófinu.