5.1.2012

Gæðastefna fyrir stofnunina

Framkvæmdastjórn Reykjalundar hefur samþykkt gæðastefnu fyrir stofnunina.

23.12.2011

20 ára starfsafmæli

Þann 21. desember s.l.voru starfsmenn sem unnið hafa á Reykjalundi heiðraðir.

18.11.2011

Vísindadagur á Reykjalundi.

Föstudaginn 18. nóvember 2011 var haldinn vísindadagur á Reykjalundi – sá áttundi í röðinni frá árinu 2004.

20.10.2011

HAM-bókar vefsíða Reykjalundar opin fyrir alla

HAM-bókar verkefninu hefur verið gríðarlega vel tekið. Bókin hefur selst vel og mikill áhugi er fyrir námskeiðum. Hátt í 40 manns mættu á námskeiðið fyrir almenning sem var haldið hér á Reykjalundi s.l. föstudag og um eitt hundrað hafa skráð sig á námskeiðið fyrir fagfólk sem verður 4. nóvember. Námskeiðið er orðið það fjölmennt að það rúmast ekki vel hér í húsi og erum við því búin að bóka sal á Hótel Sögu. 

 Það hefur alltaf verið markmið geðteymisins að gera efnið aðgengilegt sem flestum og aðalástæða þess að við fórum af stað í þetta verkefni í byrjun var að auðvelda aðgengi að hugrænni atferlismeðferð.  Fyrst vorum við aðallega að hugsa um okkar skjólstæðinga á Reykjalundi þ.e. að hafa efnið á aðgengilegra formi fyrir þá, en síðan þróaðist vinnan í þá átt að gera þetta HAM verkefni aðgengilegt sem flestum, m.a. með því að endurskrifa bókina sem sjálfshjálparbók. Eftir viðræður við styrktaraðila okkar (Oddfellow) og framkvæmdastjórn Reykjalundar er það því okkur mikil ánægja að tilkynna að frá og með deginum í gær er HAM-bókar vefsíða Reykjalundar opin fyrir alla án nokkurs endurgjalds.

 f.h. geðteymis

Inga Hrefna, sálfr.

11.10.2011

Geðsviðið fékk afhent hvatningarverðlaun.

Í gær fékk Geðsviðið  afhent hvatningarverðlaun Forvarna-og fræðslusjóðsins ÞÚ GETUR  á Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum fyrir HAM-bókina. Af því tilefni munum við verða með opna kynningu á bókinni og vefnum fyrir almenning á föstudaginn (14. okt.) kl. 14-16 í Samkomusalnum. 

 Námskeið fyrir fagfólk verður svo haldið hér á Reykjalundi 4. nóv. kl. 10-16 þar sem HAM bókin og  vefurinn verður kynnt. Um 50 manns eru nú þegar búnir að skrá sig. Óskir hafa komið frá Akureyri um að halda samskonar námskeið þar og verður það væntanlega um miðjan nóvember.

 

5.10.2011

HAM-námskeið fyrir almenning

Starfsfólk geðsviðs Reykjalundar mun halda námsskeið fyrir almenning þar sem farið verður í þær aðferðir sem kenndar eru

4.10.2011

HAM-námskeið

Starfsfólk geðsviðs Reykjalundar mun halda námsskeið fyrir fagaðila þar sem farið verður í þær aðferðir sem kenndar eru í HAMbókinni og hafa reynst hjálplegar við vægu og meðaldjúpu þunglyndi.

3.10.2011

Vísindadagur á Reykjalundi 2011

Vísindadagur á Reykjalundi verður í áttunda sinn föstudaginn 18. nóvember n.k. kl. 13-16.  Þá gefst starfsmönnum Reykjalundar tækifæri til að kynna rannsóknarverkefni sín og helstu niðurstöður þeirra fyrir samstarfsfólki sínu og öðrum gestum vísindadags.  Verkefnanemar, sem vinna/hafa unnið verkefni sín á Reykjalundi, eru sérstaklega hvattir til að taka þátt.   Ætlunin er að hafa bæði stutt erindi og veggspjöld. 

Allir þeir sem ætla að kynna verkefni þurfa að….

20.9.2011

Verslunin opnar aftur í dag

Namo ehf. hefur verslunarrekstur á Reykjalundi í dag.  Verslunin verður staðsett á bláa ganginum þar sem verslun Reykjalundar var áður staðsett.