Skipulagsreglur

Vísindasjóðs Reykjalundar


1. gr.

Sjóðurinn heitir Vísindasjóður Reykjalundar. Sjóðurinn er vistaður á Reykjalundi, Mosfellsbæ og telst þar aðsetur hans og varnarþing.

2.gr.

Stofnframlag sjóðsins er krónur 1.000.000 sem greitt er úr Oddssjóði samkvæmt ákvörðun stjórnar Reykjalundar við staðfestingu á vísindastefnu og reglum um rannsóknir á Reykjalundi þann 10. mars 2004.


3.gr.

Tilgangur sjóðsins er að styðja við rannsóknir og vísindastarfsemi á Reykjalundi.

Rétt til styrkveitinga úr sjóðnum eiga allir starfsmenn Reykjalundar.

Óheimilt er að veita lán úr sjóðnum.


4.gr.

Stjórn Reykjalundar er jafnframt stjórn vísindasjóðsins og tekur hún ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum að fengnum tillögum framkvæmdastjórnar Reykjalundar.

Ákvörðun um reglulega úthlutun skal tekin á fundi stjórnar sjóðsins í október ár hvert. Úthlutun er heimil í á öðrum tímum og oftar ef sérstakar ástæður krefjast.


5.gr.

Tekjur sjóðsins eru :

·Árlegt framlag Reykjalundar samkvæmt ákvörðun stjórnar í fjárhagsáætlun hvers árs.

·Framlög, gjafir og vaxtatekjur af eignum sjóðsins.

·Aðrar tekjur.

Engin kvöð er um bindingu stofnframlags eða síðari framlaga í sjóðinn en þess jafnan gætt að úthlutanir úr sjóðnum gangi ekki svo á höfuðstól að sjóðurinn verði ófær um að gegna hlutverki sínu að teknu tilliti til jafnræðis milli verkefna á hverjum tíma.


6. gr.

Sjóðurinn skal vera í vörslu Reykjalundar, sérgreindur frá öðrum fjárhag stofnunarinnar og ávalt ávaxtaður með hagkvæmasta hætti.

Löggiltur endurskoðandi Reykjalundar er jafnframt endurskoðandi sjóðsins.


7.gr.

Skriflegar umsóknir um framlag úr sjóðnum þurfa að berast framkvæmdastjórn fyrir lok maímánaðar hvers árs. Þær þurfa að vera vel rökstuddar með kostnaðar- og tímaáætlunum. Vísindaráð Reykjalundar skal leggja faglegt mat á umsóknir um styrki úr sjóðnum og skilar áliti til framkvæmdastjórnar.

Í umsókn um framlag úr sjóðnum skal koma fram hvort umsækjandi nýtur styrkja frá öðrum aðilum, sjóðum, fyrirtækjum eða einstaklingum.


8.gr.

Komi fram tillaga um breytingar á skipulagsskrá þessari skal hún borin upp á stjórnarfundi og telst samþykkt ef meirihluti stjórnar greiðir henni atkvæði.

Sama gildir ef fram kemur tillaga um að leggja sjóðinn niður en í því tilfelli skulu eignir sjóðsins renna til sambærilegrar starfsemi á Reykjalundi.


Gert á Reykjalundi 18. október 2005



Í stjórn Reykjalundar


Stefán Arngrímsson (sign)
Salome Þorkelsdóttir (sign)
Karl Ómar Jónsson (sign)

Sveingerður Hjartardóttir (sign)
Ludvig Guðmundsson (sign)

Breyting á reglum frá 16. desember 2004