Í reglum um rannsóknir á Reykjalundi segir að vísindaráð eigi að setja sér vinnureglur sem hljóta þurfi samþykki framkvæmdarstjórnar. Hlutverk vísindaráðs er síðan nefnt í fimm liðum þar sem í fyrsta lið segir að ráðið skuli vera stjórn og stjórnendum Reykjalundar ráðgefandi um vísindastefnu stofnunarinnar. Önnur hlutverk eru:

  • Að vinna náið með rannsóknarstjóra að framgangi vísindastefnunnar.
  • Að vinna að formlegum tengslum og samstarfi við aðrar stofnanir, innan lands og utan.
  • Að leggja faglegt mat á allar umsóknir um styrki úr vísindasjóði og skila áliti til framkvæmdastjórnar.
  • Að gæta samræmis í þeim matstækjum sem notuð eru á stofnuninni og vera ráðgefandi um stöðluð vinnubrögð við notkun þeirra.