Í ár bárust tvær umsóknir í vísindasjóð Reykjalundar en bæði rannsóknarverkefnin hlutu styrk á síðasta ári og sækja nú um viðbótarstyrk.  

1. Mun mat á eigin getu og virkni í langvinnum veikindafjarvistum hafa forspárgildi um endurkomu til vinnu eftir atvinnulega endurhæfingu,   hlýtur styrk til aðkeyptrar vinnu við innslátt gagna og til að geta haldið nauðsynlegu sambandi við norska meðrannsakendur. Þetta verkefni er hluti af mjög metnaðarfullu norsku verkefni þar sem meta á forspárgildi ýmissa mælitækja sem notuð eru í starfsendurhæfingu. Styrkupphæð 600.000. kr. Ábyrgðarmaður verkefnisins er Gunnar Kr. Guðmundsson yfirlæknir atvinnulegrar endurhæfingar en meðrannsakendur hans hérlendis eru starfsmenn sviðs atvinnulegrar endurhæfingar.  

2. Áhrif endurhæfingar á sjúklinga með langvinna lungnateppu eða langvinna hjartabilun, hlýtur styrk að upphæð 370 þúsund. Verkefnið hlýtur styrk til innsláttar gagna og til að mæta nauðsynlegum kostnaði vegna komu fólks  í endurmat  en hluti rannsóknarverkefnisins fellst í að meta langtíma áhrif endurhæfingarinnar. Ábyrgðarmaður verkefnisins er Marta Guðjónsdóttir rannsóknarstjóri en hún vinnur þetta verkefni með nokkrum læknum og sjúkraþjálfurum Reykjalundar, lækni á LSH og kennara og nema við Háskóla Íslands. Hluti rannsóknarinnar fellur undir meistaraverkefni nema við Háskóla Íslands.