Hjördís Jónsdóttir lækningaforstjóri veitir styrki úr vísindasjóði 2007


Er þetta í annað sinn sem úthlutað er úr sjóðnum og að þessu sinni hlutu eftirfarandi rannsóknir styrki:


1.
Heilsutengd lífsgæði eftir heilaslag; Áreiðanleiki íslenskrar þýðingar á “Stroke Impact Scale” Ábyrgðarmaður: H. Sif Gylfadóttir, sjúkraþjálfari. Veittur styrkur: 200.000 kr.


2.
Prófun á réttmæti og áreiðanleika á íslenskri þýðingu á lífsgæðalista fyrir fólk með parkinsonsveiki, PDQ-39 IS 2. útgáfa. Ábyrgðarmaður: Ólöf Bjarnadóttir, læknir. Veittur styrkur: 250.000 kr.


3. Prófun á réttmæti og áreiðanleika íslenskrar þýðingar matstækisins, Mat á eigin iðju.
Ábyrgðarmaður: Margrét Sigurðardóttir, iðjuþjálfi. Veittur styrkur: 100.000 kr.


4.
Áhrif mikillar gönguþjálfunar með sjónáreiti á göngu parkinsonssjúklinga. Framskyggn slembuð meðferðarprófun. Ábyrgðarmaður: Ólöf H. Bjarnadóttir, læknir. Veittur styrkur: 300.000 kr.


5.
Áhrif endurhæfingar á sjúklinga með langvinna lungnateppu eða langvinna hjartabilun. Ábyrgðarmaður: Marta Guðjónsdóttir, lífeðlisfræðingur. Veittur styrkur: 500.000 kr.


6.
Endurhæfing og eftirfylgd: Reynsla, þátttaka og virkni skjólstæðinga. Ábyrgðarmaður: Margrét Sigurðardóttir iðjuþjálfi. Veittur styrkur : kr. 100.000. kr.


7.
Will a survey of self-evaluated function, work assessments, subjective health complaints and fear avoidance beliefs give a clinical and predictive contribution for return to work within long-term sick listed individuals, after vocational rehabilitation? Ábyrgðarmaður: Gunnar K Guðmundsson, læknir. Veittur styrkur: 200.000 kr.


8.
Creating an empowering milieu for patients in rehabilitation. Ábyrgðarmaður: Jónína Sigurgeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Veittur styrkur: 60.000 kr.


9.
Að takast á við langvarandi veikindi: Þáttur kvíðanæmis og annarra sálrænna þátta í því hvernig fólk upplifir veikindi sín. Ábyrgðarmaður: Inga Hrefna Jónsdóttir, sálfræðingur. Veittur styrkur: 100.000 kr.