
Happdrætti SÍBS er
hornsteinn framkvæmda
á Reykjalundi.
1. Íslensk þýðing og forprófun á greindarprófi Wechslers fyrir fullorðna.
Umsækjendur eru sálfræðingarnir Inga Hrefna Jónsdóttir og Rúnar Helgi Andrason.
Verkefni þeirra er unnið í samvinnu við sálfræðingana Eirík Líndal og Má Viðar Másson.
Upphæðin sem veitt er til þessa verkefnis er 200.000 kr.
2. Vonleysi sjúklinga í geðendurhæfingu, skýringarlíkan og áhrif hugrænnar atferlismeðferðar á vonleysi.
Ábyrgðarmaður og umsækjandi er Rósa María Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Upphæðin sem veitt er til verkefnisins er 200.000 kr
3. Hugræn atferlismeðferð við langvinnri geðlægð. Samanburður á einstaklings- og hópmeðferð
Umsækjendur eru Pétur Hauksson læknir, Inga Hrefna Jónsdóttir sálfræðingur og Sylvía Ingibergsdóttir Hjúkrunarfræðingur
Upphæðin sem veitt er til verkefnisins er 750.000 kr.
4. Mat á breytingu á upplifun á andnauð við endurhæfingu sjúklinga með langvinna lungnateppu
Umsækjendur Elfa Dröfn Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur, Marta Guðjónsdóttir lífeðlisfræðingur og Guðbjörg Pétursdóttir Hjúkrunarfræðingur
Upphæðin sem veitt er til verkefnisins er 500.000 kr.
5. Færni, radd- og kyngingarörðuleikar hjá sjúklingum með Myotonic Dystrophy og tengsl við DNA lengdarbreytingar
Umsækjandi og ábyrgðarmaður Reynir Arngrímsson læknir.
Upphæðin sem veitt er til verkefnisins er 200.000 kr.
6. Meðferðarsamband fagaðila og sjúklinga sem þjást af þunglyndi og fá hugræna atferlismeðferð á geðsviði Reykjalundar. Athuga hvernig eiginleikar sjúklinga sem þegar hafa verið greindir tengjast árangri meðferðar
Umsækjandi og ábyrgðarmaður verkefnisins er Sylvía Ingibergsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Upphæðin sem veitt er til verksins er 180.000.