Slökun
Almenn slökun er í boði fyrir alla sjúklinga Reykjalundar.

Mánudaga , þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 12.30 13.00
Iðjuþjálfar hafa umsjón með slökun á þessum tíma. Markmiðið er að þátttakendur verði meðvitaðir um ástand hugar og líkama og upplifi slökun. Lögð er áhersla á að slökun krefst ekki sérstaks umbúnaðar og að hún getur farið fram við mismunandi aðstæður. Inn í þessa slökunartíma er fléttað fræðslu til að vekja athygli á streitueinkennum, streituvekjandi aðstæðum og áreiti í daglegu lífi. Þótt slökun sé ekki flókin krefst hún þjálfunar og allir geta gert slökun að hluta af sínum lífsstíl.
Mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17.00 - 17.30 og 17.30 -18.00
Á þessum tíma er slökun í umsjón hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Fyrri tíminn er ætlaður þeim sem eru í bakskóla en sá seinni er opinn öllum. Farið er í gegnum stigvissa slökun og síðan eru einstaklingar leiddir inn í sjónsköpun (ímyndanir). Markmiðið er að hjálpa sjúklingum að bæta sjálfsmynd sína og auka vellíðan, með því að draga úr kvíða og streitu.