Reyklaust líf

Meðferð gegn tóbaksneyslu er sameiginleg fyrir öll svið á Reykjalundi.

Á hverjum mánudegi klukkan 13 er haldinn kynningarfundur sem kallast ,,Nýr lífsstíll." Er hann ætlaður öllum  sem neyta tóbaks við innritun á Reykjalund. Fundurinn er hugsaður sem heilsuhvatning og áskorun til sjúklinga um að nota tækifærið sem þeim býðst hér á Reykjalundi til að hætta að tóbaksneyslu. Í meðferðinni felst að veittur er stuðningur, fræðsla og eftirfylgd eftir útskrift.

Rannsóknir benda til þess að umhverfi eins og á Reykjalundi bjóði upp á kjöraðstæður til þess að hætta tóbaksneyslu. Breytt umhverfi, líkamleg virkni, fræðsla, stuðningur fagfólks, lyfjameðferð og hópefli hjálpast þar að.  
Skilyrði fyrir inngöngu í meðferðina ,,Reyklaust líf" er algert tóbaksleysi.
Alla föstudaga kl. 10 er fræðslufundur um tóbak og heilsu.
Fundir stuðningshópa eru á hjúkrunardeildum, á mánudögum kl. 17 eða á þriðjudögum kl. 20.
Persónulegur stuðningur er veittur af starfsfólki hjúkrunardeilda og teyminu öllu.

Flestir vita að tóbaksneysla er skaðleg og hefur áhrif á hjarta, lungu og æðakerfi. Færri gera sér grein fyrir samspili tóbaksneyslu, bakvandamála og langvinnra verkja. Einnig tefur tóbaksneysla fyrir því að sár grói. Reykingar flýta fyrir þrengingu og stífnun æðakerfisins og við það verður blóðflæði um líkamann lélegra. Hlutverk æðakerfisins er að flytja næringu og súrefni til allra frumna líkamans. Kolmónoxíð (CO) er lofttegund sem myndast við ófullkominn bruna, meðal annars við reykingar. Blóðrauðinn tekur til sín CO og þá minnkar súrefnismettun í blóði sem veldur því að viðkvæmir vefir líkamans hrörna fyrr hjá reykingamönnum en öðrum. Líkaminn bregst við lægri súrefnismettun með því að framleiða meira af rauðum blóðkornum, svo blóðið þykknar og hætta á blóðtöppum eykst.

Hlökkum til að sjá ykkur sem þátttakendur í meðferðinni ,,Reyklaust líf."

Tengingar:

Námskeið í reykleysi á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga

Tóbaksvarnaráð