Bak- og verkjaskóli

Að bak- og verkjaskólanum standa iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar, endurhæfingar- og geðlæknir, hjúkrunarfræðingar og félagsráðgjafi.



Markmiðið með bak- og verkjaskólanum er að fólk verði meðvitað um áhrif lifnaðarhátta á heilsuna, fái betri tilfinningu fyrir sjálfu sér með fræðslu og æfingum og læri góð vinnubrögð. Skólinn stendur yfir í tvær vikur og er samtals um 30 stundir. Miðað er við að tíu einstaklingar sitji hvert námskeið.

Í fræðslufyrirlestrum bakskólans er fjallað um flest sem viðkemur langvarandi verkjum, m.a. byggingu og starfsemi stoðkerfisins, lífsstíl, streitu og stjórn langvinnra verkja.

Í verklegum tímum er m.a. farið yfir vinnustellingar og lyftitækni. Nemendur bakskólans taka einnig þátt í námskeiði þar sem kenndar eru leiðir til að auka vitund þeirra um eigin líkama. Þá er slökunarnámskeið tengt skólanum og stuðningshópur þar sem rætt er um andlega fylgikvilla langvarandi verkja.