Skólar á Reykjalundi

Menntun er mikilvægur hlekkur í endurhæfingu. Fræðsla á Reykjalundi er á ýmsu formi, allt frá því að vera einstaklingsbundin, þar sem leiðbeinandi og sjúklingur vinna saman að ákveðnum verkefnum, yfir í að fara fram í hópum. Nokkrum þáttum í fræðslu á Reykjalundi hefur verið þjappað saman undir merkjum skóla, sem hver um sig er skipulagður og starfræktur af mörgum faghópum.

Bakskólinn og reyklaust líf eru dæmi um skóla sem eru opnir fyrir alla sjúklinga á Reykjalundi, en t.d. megrunarskólinn og lungnaskólinn eru sérsniðnir fyrir ákveðna sjúklingahópa.

Hópefli og jafningjastuðningur getur komið að góðu gagni í fræðslu.  Eru stuðningsfundir því oft samtvinnaðir fræðsludagskránni.