Rannsóknir / fræðsla
Reykjalundur hefur sett sér þá stefnu að efla vísindarannsóknir í endurhæfingu. Reglur um rannsóknir á Reykjalundi voru samþykktar af stjórn Reykjalundar í mars 2004. Í október 2005 voru samþykktar af stjórn skipulagsreglur um vísindasjóð Reykjalundar. Þar er kveðið á um tilgang sjóðsins sem er að styðja við rannsóknir og vísindastarfsemi á Reykjalundi, um stofnframlag hans og um rétt til styrkveitinga. Stjórn Reykjalundar er jafnframt stjórn vísindasjóðsins og tekur hún ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum að fengnum tillögum framkvæmdastjórnar Reykjalundar.
Reykjalundur eflist sem rannsóknar- og kennslustofnun í endurhæfingu. Háskólinn á Akureyri og Reykjalundur endurhæfingarmiðstöð SÍBS gerðu á árinu 2007 með sér samkomulag sem miðar að því að styrkja kennslu og rannsóknir í endurhæfingu. Annars vegar er um að ræða samkomulag sem felur í sér þátttöku Reykjalundar í kennslu og leiðsögn nemenda í Heilbrigðisdeild HA. Hins vegar þann ásetning samningsaðila að efla endurhæfingu í landinu með því að auka rannsóknir sem tengjast endurhæfingu. Með samkomulaginu tekur Reykjalundur að sér hlutverk kennslustofnunar í vettvangsnámi og klínísku námi fyrir nema HA í iðjuþjálfun og hjúkrunarfræði og fer námið fram á Reykjalundi. Aðilar vænta mikils af þessu samstarfi og munu leggja metnað sinn í að uppfylla markmið samkomulagsins í hvívetna.