Verkjasvið

Á verkjasviði starfar teymi starfsmanna sem hafa sérhæft sig í endurhæfingu fólks með langvarandi verkjavandamál. Er þar fyrst og fremst um fólk með stoðkerfisverki að ræða en einnig verki án þekktra orsaka.

Í upphafi meðferðar er eðli verkjavandamála skilgreint og orsakir þeirra. Það er m.a. gert með skoðun á líkamlegri, andlegri og félagslegri stöðu hvers og eins. Í samræmi við niðurstöður þeirrar skoðunar er í samvinnu við sjúkling gerð markviss meðferðaráætlun. Mikilvægt er að fólk sé áhugasamt og beri ábyrgð á sínum hluta áætlunarinnar.

Stór hluti meðferðarinnar fer fram í hópum svo sem leikfimi, göngu, vatnsleikfimi, sundi og slökun og streitustjórnun. Áhersla er lögð á fræðslu sem fer m.a. fram í bak- og verkjaskóla. Hugrænni atferlismeðferð er beitt þegar þörf krefur, m.a. til að draga úr depurð og kvíða sem getur verið afleiðing langvinnra verkja.

Hjá sumum er gerð vinnuathugun og eftir atvikum vinnuþjálfun. Endurhæfing er einnig fólgin í einstaklingsbundinni meðferð og þjálfun.