12.9.2011
Fimmtudaginn 8.9. var haldið málþing um parkinsonveiki í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Parkinsonteymi taugasviðs Reykjalundar hafði frumkvæði að málþinginu ásamt Taugalæknafélagi Íslands, en einnig tóku þátt fyrirlesarar frá Landsspítala og Háskóla Íslands. Þingið var stutt af GlaxoSmithKline sem sá um skipulag og alla ytri umgjörð málþingsins.
2.3.2011
Fimmtudaginn 28. apríl 2011, kl 13 verður fræðsludagur á vegum parkinsonsteymis Reykjalundar fyrir fólk sem nýlega hefur greinst með parkinsonsveiki og aðstandendur þess.
29.7.2008
Árangur þverfaglegrar endurhæfingar fyrir fólk með parkinsonsveiki. Samanburður á fjögurra og fimm vikna hópmeðferð. Hér má sjá niðurstöður sem birtar voru á vísindadegi Reykjalundar í nóvember 2007: ParkagaedaPoster_071116.pdf
8.2.2007
Parkinsonsveiki
Parkinsonsveiki er fyrst og fremst sjúkdómur eldra fólks, þar sem meðalaldur við greiningu er um 65 ár. Orsök sjúkdómsins er hrörnun í heilakjörnum. Einkenni eru m.a. hægar hreyfingar, truflun á samhæfingu vöðva, jafnvægisskerðing og oft einnig skjálfti. Fram geta komið önnur einkenni, eins og truflun á þvagi, hægðum og svefni, eða kvíði og depurð.