Skilgreining fagráðs um heilaskaða
Fagráð um heilaskaða
Fagráðið Fagráðið er þverfaglegur hópur fagfólks sem lætur sig málefni heilaskaða varða. Fagráðið velur sér formann og ritara til eins árs í senn, en hlutverk þeirra er að halda utan um starfsemi fagráðsins. Fulltrúar í fagráði fylla út og undirrita þátttökuyfirlýsingu til eins árs í senn. Þar koma fram upplýsingar um sérhæfingu, verksvið og það framlag til starfsins sem viðkomandi getur lagt af mörkum á starfsárinu. Formaður og ritari fagráðsins velja félaga í fagráðið. Í fagráðinu er ekki fjárhagsleg umsýsla og því ekki þörf á gjaldkera.
Hlutverk fagráðsins er:
· Að koma á framfæri upplýsingum um stöðu, efla virðingu og auka virkni og þátttöku fólks með heilaskaða.
· Að efla skilning almennings á málefnum fólks með heilaskaða og aðstandenda.
· Að vera stjórnvöldum til ráðgjafar í uppbyggingu og þróun á nauðsynlegri þjónustu fyrir fólk með heilaskaða og aðstandendur.
· Að festa í sessi þverfaglegt samráð í málefnum fólks með heilaskaða.
· Að stuðla að góðri og gagnvirkri samvinnu þjónustustofnana ríkis og sveitarfélaga.
· Að efla fræðslu og hvetja til rannsókna.
Tillögur um starfsemi og vinnulag í fagráði .
· Að vetrarstaf verði skipulagt að hausti og sett fram í skriflegri áætlun.
· Að lögð verði áhersla á breiðan faghóp í fagráði og að virkja sem flesta félaga í hópa- og þróunarstarfi.
· Að áhersla verði á starfsemi sem miðlar þekkingu og reynslu, t.d. umræðuhópar.
· Að á hverju starfsári verði kynningarátak, málþing eða önnur dagskrá sem eflir og miðlar þekkingu á málefnum fólks með heilaskaða og aðstandenda.
Stofnun félags fyrir fólk með heilaskaða og aðstandendur.
- Fagráðið lýsir yfir vilja til að aðstoða við stofnun félags fyrir fólk með heilskaða og aðstandendur þess.
- Áhersla er lögð á að fagleg tenging á milli fagráðsins og félagsins verði skilgreind í lögum félagsins.
- Fagráðið leggur áherslu á að umfangsmiklar ákvarðanir stjórnar félagsins verði teknar í samráði við fagráðið.
- Fagráðið býður fram einn fulltrúa í stjórn félagsins og annan til vara.
- Fagráðið leggur áherslu á að ímynd félagsins endurspegli faglegt starf, virðingu og víðsýni.
Samþykkt á stofnfundi fagráðs 6.9.2006
(Hér má nálgast Wordútgáfu af skilgreiningunni)