Heilaskaði
Heilaskaði getur verið af völdum áverka eða sjúkdóms í heila. Skaðinn veldur truflun á stjórnstöð heilans og einkenni geta verið minnisskerðing, skipulagsvandi, innsæisleysi eða geðsveiflur. Dæmigert fyrir þessi einkenni er að þau sjást ekki utan á fólki en valda oft miklum erfiðleikum hjá einstaklingnum og fjölskyldu hans.