Ýmisir taugasjúkdómar

Vöðvasjúkdómar valda truflun á starfsemi vöðva með lömun og mismikilli fötlun. Oft er þörf á athugun á hjálpartækjum og/eða aðlögun á umhverfinu.


Flogaveiki

einkennist af skyndilegri truflun á meðvitund. Orsök er truflun á starfsemi taugafrumna í heila, sem skyndilega afhlaðast og starfsemi þeirra verður óeðlileg. Víðtæk truflun getur valdið flogakasti með meðvitundarleysi. Ef flogaköst eru mjög tíð geta þau valdið óöryggi og ótta en einnig truflun á vitrænni getu.