Parkinsonsveikin staðfest - hvað svo?

                                                                            
 Parkinsonsveikin staðfest - hvað svo?

 

Fimmtudaginn 15. apríl 2010 verður fræðsludagur á vegum parkinsonsteymis Reykjalundar fyrir fólk sem nýlega hefur greinst með parkinsonsveiki og aðstandendur þess.

 

Markmið fræðsludagsins er að upplýsa þátttakendur um sjúkdóminn og meðferðarmöguleika.  Áhersla er lögð á virkni einstaklingsins,  ábyrgð á eigin heilsu og aðlögun að lífi með langvinnan sjúkdóm.

Dagskrá: sjá

Boðið verður upp á viðtöl við fagfólk í parkinsonsteymi að lokinni dagskrá.

 

Í teyminu eru: 

 Læknir, hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi, félagsráðgjafi,   

 talmeinafræðingur og sjúkraþjálfari.

 

 

Nánari upplýsingar og skráning í síma 585-2107, hjá

Hafdísi Gunnbjörnsdóttur, hjúkrunarfræðingi.

Aðgangur er ókeypis.

Með fyrirvara um næga þátttöku