12.9.2011
Fimmtudaginn 8.9. var haldið málþing um parkinsonveiki í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Parkinsonteymi taugasviðs Reykjalundar hafði frumkvæði að málþinginu ásamt Taugalæknafélagi Íslands, en einnig tóku þátt fyrirlesarar frá Landsspítala og Háskóla Íslands. Þingið var stutt af GlaxoSmithKline sem sá um skipulag og alla ytri umgjörð málþingsins.
29.7.2008
Árangur þverfaglegrar endurhæfingar fyrir fólk með parkinsonsveiki. Samanburður á fjögurra og fimm vikna hópmeðferð. Hér má sjá niðurstöður sem birtar voru á vísindadegi Reykjalundar í nóvember 2007: ParkagaedaPoster_071116.pdf
8.2.2007
Vöðvasjúkdómar
Vöðvasjúkdómar valda truflun á starfsemi vöðva með lömun og mismikilli fötlun. Oft er þörf á athugun á hjálpartækjum og/eða aðlögun á umhverfinu.
8.2.2007
Heilaslag
Heilaslag er talið algengasta ástæða fötlunar hjá fólki. Orsök er skyndileg truflun á blóðflæði á ákveðnum stað í heila vegna blóðtappa eða blæðingar. Afleiðingar eru allt frá því að vera litlar sem engar, í að fólk eigi í erfiðleikum með tjáskipti og þarfnist hjálpar við eigin umsjá.
8.2.2007
Flogaveiki
Flogaveiki einkennist af skyndilegri truflun á meðvitund. Orsök er truflun á starfsemi taugafrumna í heila, sem skyndilega afhlaðast og starfsemi þeirra verður óeðlileg. Víðtæk truflun getur valdið flogakasti með meðvitundarleysi. Ef flogaköst eru mjög tíð geta þau valdið óöryggi og ótta en einnig truflun á vitrænni getu.
8.2.2007
MS
MS er sjúkdómur yngra fólks. Hann leggst aðallega á konur á aldrinum 20-30 ára. Orsök er niðurbrot á einangrunarefni taugafrumna. Einkenni geta verið versnandi lömun í fótleggjum með skyntruflun og aukinni vöðvaspennu. Önnur einkenni geta verið bráð þvaglát, minnisskerðing, þreyta eða verkir.
8.2.2007
Parkinsonsveiki
Parkinsonsveiki er fyrst og fremst sjúkdómur eldra fólks, þar sem meðalaldur við greiningu er um 65 ár. Orsök sjúkdómsins er hrörnun í heilakjörnum. Einkenni eru m.a. hægar hreyfingar, truflun á samhæfingu vöðva, jafnvægisskerðing og oft einnig skjálfti. Fram geta komið önnur einkenni, eins og truflun á þvagi, hægðum og svefni, eða kvíði og depurð.