KYNNING Á OFFITUMEÐFERÐ Á REYKJALUNDI  

Inngangur :  
Frá byrjun árs 2001 hefur  næringar- og offituteymi verið starfrækt á Reykjalundi.  Helstu verkefni þess eru meðferð alvarlegrar offitu.  Meðferðin er byggð upp sem atferlismótandi meðferð. Markmið meðferðarinnar er að aðstoða fólk, með alvarlegan offituvanda, að endurskipuleggja og bæta lífshætti sína og fæðuvenjur, í því skyni að léttast, auka virkni, bæta heilsu og lífsgæði.   
Meðferðin er ekki hugsuð sem kúr, heldur varanleg lífsháttabreyting.
Hún tekur á mörgum þáttum sem tengjast offituvandanum, svo sem fæðuvali, máltíðamynstri og hreyfingu.  Auk þess er unnið með sjálfsímynd, andlega og líkamlega líðan og félagslega þætti eftir því sem við á.  
Árið 2002 hófst samstarf milli skurðdeildar Landspítala og Reykjalundar sem miðar að því að undirbúa offitusjúklinga fyrir magahjáveituaðgerðir. Meðferðin á Reykjalundi er sú sama hvort heldur fólk stefnir á aðgerð eða ekki.  

Skilyrði fyrir offitumeðferð á Reykjalundi :

1.      Tilvísun frá lækni
2.      Aldur 18-65 ára.
3.      Verulegt offituvandamál, þyngdarstuðull (BMI)  >35
4.      Sýna vilja í verki til að takast á við vandann.
5.      Reykleysi.
6.      Áfengis- og fíkniefnasjúklingar séu óvirkir.
7.      Að viðkomandi geti nýtt sér meðferðina.

Skipulag meðferðar:  

Forskoðun:

Þeir, sem vísað er til offitumeðferðar, eru boðaðir til forskoðunar á göngudeild í þeirri röð sem beiðnir berast.  Í forskoðuninni eru gerðar mælingar á holdarfari, andlegri líðan, þolpróf og blóðrannsóknir. Sjúklingar hitta lækni til viðtals og skoðunar. Meðferðarkostir eru ræddir. 
  Göngudeildarmeðferð:  Að lokinni forskoðun hefst meðferð á göngudeild, gerð er meðferðaráætlun og sjúklingi  veittur stuðningur með komum á göngudeildina, til hjúkrunarfræðings eða iðjuþjálfa, þar sem meðal annars er unnið  með máltíðarmynstur, matardagbók, næringarinnihald og skipulag daglegs lífs. Möguleiki er á næringarráðgjöf, sálfræðiaðstoð og félagsráðgjöf.  Sjúklingar fá leiðbeiningar varðandi þjálfun og hreyfingu og geta jafnframt nýtt sér þjálfunaraðstöðu á Reykjalundi.  
Dagdeildarmeðferð: Skilyrði fyrir dagdeildarmeðferð er að sjúklingur hafi sýnt að hann sé tilbúinn til að vinna að nauðsynlegum lífsháttabreytingum. Hann hafi skráð samviskusamlega í matardagbók og fylgt ráðleggingum varðandi fæðuval og máltíðamynstur.  Einnig að hreyfing sé reglubundin.  Krafa er gerð um minnst 6-8% þyngdartap fyrir dagdeildarmeðferðina.  Miðað er við að skilyrðum sé náð innan 6 mánaða frá fyrstu komu á göngudeild.  

Skipulag Dagdeildarmeðferðar:
Meðferðinni er skipt í tvö tímabil.  Það fyrra er 5 vikur og það síðara 3 vikur. 6 mánuðir eru á milli meðferða.  Um er að ræða skipulagða hópmeðferð þar sem eru 6-8 einstaklingar sem fylgjast að allt til loka meðferðarinnar.  Meðferðin er skipulögð með tilliti til þess að hægt sé að sinna daglegum störfum samfara henni.  Gert er ráð fyrir hálfum degi þrisvar í viku.  Fólk sem býr utan höfuðborgarsvæðisins, eða sem af öðrum ástæðum getur ekki sótt meðferðina að heiman, getur  fengið gistingu á Reykjalundi meðan á prógrammi stendur.  Fjöldi plássa er takmarkaður við 3-4 pláss alls.

Meðferðin felst í :
Atferlismeðferð, sem meðal annars felur í sér fræðslu og kennslu um næringu, hreyfingu og önnur efni tengd offitu.  Líkamleg þjálfun er veigamikill þáttur í meðferðinni.  Einnig er unnið með sjálfsstyrkingu, slökun og skipulag daglegs lífs.  Þó um hópmeðferð sé að ræða er tekið mið af getu og þörfum hvers og eins.  Þeim sem þurfa einstaklingsbundna meðferð t.d. sálfræðiaðstoð, næringarráðgjöf, sjúkraþjálfun og aðra meðferð er veitt sú meðferð eftir því sem kostur gefst.  

Eftirfylgd:
Eftir að dagdeildarmeðferð lýkur kemur sjúklingur í 6 endurkomur á 2 árum. Tilgangur eftirfylgdar er að veita áframhaldandi stuðning og fræðslu. Eftirfylgnin tekur rúmlega hálfan dag.  Í endurkomunum er fylgst með árangri meðferðarinnar, gerðar eru ýmsar mælingar og próf.  Boðið er upp á hópumræður og veittur stuðningur og leiðbeiningar eftir því sem þörf er á. Farið er í tækjasal, sundlaug eða aðra hreyfingu milli atriða. Sjúklingum gefst kostur á að hitta einstaka starfsmenn teymisins ef þess er  þörf.  Boðið er upp á fræðslufund og hverjum degi lýkur með gönguferð.   

Tímarammi meðferðar:

1.                Forskoðun-Göngudeildarmeðferð                      3-6 mán
2.                Dagdeildarmeðferð fyrri hluti                              5 vikur
3.                Hlé                                                                          6 mán
4.                Dagdeildarmeðferð seinni hluti                            3 vikur
5.                Eftirfylgd, 6 skipti                                                24 mán  
Meðferðartími frá forskoðun:                                                 uþb 36