Lungnasvið

Lungnaendurhæfing er meðferðarúrræði fyrir fólk með skerðingu af völdum langvinnra lungnasjúkdóma s.s. langvinnrar lungateppu, astma og bandvefsjúkdóma í lungum. Endurhæfingin byggist á samvinnu margra fagstétta og er sniðin að þörfum hvers einstaklings. Markmiðið er að stuðla að auknum lífsgæðum og aðlögun fólks sjúkdómi sínum með því að bæta líkamlega og félagslega færni og andlega líðan.
Flestir sem koma til lungnaendurhæfingar eru með langvinna lungnateppu. Tíðni sjúkdómsins fer ört vaxandi, hann er algeng orsök örorku og nálgast að vera þriðja algengasta dánarorsök á vesturlöndum.
Reykingavarnir eru mikilvægur þáttur lungnaendurhæfingar og margir hætta reykingum við komu en undantekningalaust er það skilyrði sett að fólk í lungnaendurhæfingu sé reyklaust.