Hjartasvið
Skipulögð hjartaendurhæfing hefur verið starfrækt á Reykjalundi frá 1982. Endurhæfingin er í stöðugri þróun og endurskoðun í ljósi nýjustu viðurkenndra vísindarannsókna og reynslu.
Stefna hjartateymisins er að veita eins faglega hjartaendurhæfingu og frekast er kostur. Markmiðið er að sjúklingarnir nái sem bestu mögulegu líkamlegu, andlegu og félagslegu heilbrigði. Í teyminu starfa læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfi, heilsuþjálfari, félagsráðgjafi, sjúkraliðar og geðlæknir. Einnig hefur teymið aðgang að sálfræðiþjónustu.
Fyrir hverja?
Í endurhæfinguna kemur fólk alls staðar að af landinu, flestir eftir kransæðaaðgerðir, lokuaðgerðir, kransæðavíkkanir og hjartaáföll. Fjöldi hjartabilaðra sem hingað koma er ört vaxandi. Allir koma eftir beiðni frá lækni. Sjúklingar dvelja að jafnaði 4 vikur og er endurhæfingin einstaklingsmiðuð þótt megnið af þjálfuninni og fræðslunni fari fram í hópum.
Fyrstu 2 dagar dvalarinnar fara í kynningu, læknisskoðun, viðtöl og ýmsar prófanir m.a. áreynslupróf. Markmiðið er að ganga úr skugga um að viðkomandi sé tilbúinn í endurhæfinguna og að fá fram upplýsingar um þrek viðkomandi svo hægt sé að sníða endurhæfinguna eftir þörfum og getu hvers og eins.
Á 3ja degi dvalar hefst svo hin eiginlega endurhæfing sem samanstendur af líkamlegri þjálfun, fræðslu og margvíslegum stuðningi.
Þjálfun og fræðsla
Þolþjálfun fer m.a. fram á hjólum, í gönguhópum og leikfimi í sal eða sundlaug. Styrkþjálfun er stunduð í tækjasal, í sundlaug og eins í leikfimi í sal.
Fræðsla er mikilvægur liður í endurhæfingunni. Fjallað er um áhættuþætti, lífsstílsbreytingar, mataræði, gildi þjálfunar, streitu, svefn, lyf og hvað tekur við eftir dvöl á Reykjalundi.
Stærstur hluti sjúklinganna sækir námskeið hjá iðjuþjálfa um jafnvægi í daglegu lífi og áhersla er lögð á viðbrögð við streitu og slökun. Reykleysi er skilyrði fyrir dvöl og staðið er þétt við bakið á þeim sem eru að hætta að reykja. Þeir sem eiga við ofþyngd að stríða fá dyggan stuðning við að ná tökum á holdafarinu.
Einnig er sérhæfðari meðferð/aðstoð möguleg sé þess þörf t.d. hjá félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðingum, iðjuþjálfa, geðlækni, sjúkraþjálfara, talmeinafræðingi og fleirum.
Við útskrift
Í lok dvalar er árangur endurhæfingarinnar metinn m.a. með áreynsluprófi, í útskriftarviðtölum og með öðru mati. Mikil áhersla er lögð á viðhaldsþjálfun eftir útskrift og að byggt sé ofan á þann árangur sem náðst hefur í endurhæfingunni.