Gigtarsvið

Einn af hverjum fimm Íslendingum fær gigt einhvern tíma á lífsleiðinni en hinir einstöku gigtarsjúkdómar eru á annað hundrað. Greining og endurhæfing sem tekist er á við á gigtarsviði er því mjög fjölbreytileg þótt sjúklingarnir séu allir með sjúkdóma í stoðkerfi. Margir sjúklingar eru á lyfjameðferð sem krefst reglubundinna rannsókna.

Endurhæfing er í formi einstaklings- og hópmeðferðar. Veitt er einstaklingsfræðsla um liðvernd, líkamlegt og andlegt álag, mikilvægi hreyfingar og hvíldar. Sjúklingar hafa einnig aðgang að fræðslu í bak- og verkjaskóla, næringarfræðslu og námskeiði í slökun og streitustjórnun.

Lögð er áhersla á að auka eða viðhalda líkamlegri færni með þjálfun, bólgu- og verkjameðferð og mati á hjálpartækjum, svo eitthvað sé nefnt. Flestir taka þátt í hópþjálfun af einhverju tagi og má þar nefna leikfimi, göngu, sund, vatnsleikfimi og tómstundaiðju.