Geðsvið
Algengast er að sjúklingar komi á geðsvið vegna þunglyndis eða kvíða en oft tvinnast saman líkamleg og andleg vandamál.
Oftast er um fjölþætt vandamál að ræða og eru áföll og erfiðar ytri aðstæður gjarnan hluti af heildarmyndinni. Nálgun okkar í endurhæfingunni er fjölþætt, heildræn og einstaklingsmiðuð.
Á geðsviði Reykjalundar starfa hjúkrunarfræðingar, geðlæknar, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, félagsráðgjafi, sálfræðingur, heilsuþjálfarar og ritari. Allir sem eru innskrifaðir hafa sinn hjúkrunarfræðing, lækni, sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa en hitta annað fagfólk eftir þörfum. 
Virk og sérhæfð endurhæfing
Geðraskanir geta verið langvarandi en reynsla okkar sýnir að endurhæfingin nýtist best þeim sem eru byrjaðir að vinna að eigin bata áður en þeir koma til okkar. Við vinnum út frá því grunnviðhorfi að einstaklingurinn beri sjálfur ábyrgð á að fylgja eftir sínu endurhæfingarprógrammi eins og kostur er. Endurhæfing á Reykjalundi ætti að vera hluti af lengra ferli, sem heldur áfram eftir að dvöl lýkur.
Hugræn atferlismeðferð
Starfsfólk geðsviðs Reykjalundar hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð og er meðferðin veitt af sálfræðingi, félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðingum, iðjuþjálfum og læknum. Fagaðilar teymisins meta hverjum þessi meðferð hentar og er það gert fljótlega eftir innskrift. Hugræn atferlismeðferð hefur einkum nýst vel við þunglyndi, en er notuð við sífellt fleiri sjúkdómum bæði andlegum og líkamlegum.
Hvernig kemst ég inn á geðsvið Reykjalundar?

Til að komast í endurhæfingu á geðsvið Reykjalundar þarf beiðni frá lækni. Æskilegt er að fá ítarlegar upplýsingar um heilsufar og hvað gert hefur verið til takast á við þann vanda, sem ætlað er að vinna með á Reykjalundi. Ljóst er að við náum við ekki að sinna öllum beiðnum sem til okkar berast. Helsta tæki okkar til forgangsröðunar eru þær upplýsingar sem við fáum á beiðninni, en við leitum frekari upplýsinga áður en ákvörðun er tekin um innskrift. Tilgangslaust er að safna upp margra ára biðlista eftir endurhæfingu og höfum við því gripið til sama ráðs og önnur meðferðarsvið á Reykjalundi, að vinna ekki með beiðnir sem eru eldri en eins árs. Þetta þýðir að þegar ár er liðið frá því beiðni barst okkur fellur hún út af biðlistanum. Senda má nýja beiðni með nýjum upplýsingum um heilsufar og hvað gerst hefur frá því síðasta beiðni var send. Ýmsum kann að þykja óréttlátt að falla út af biðlistanum án þess að vera boðin innlögn en eins og fram hefur komið getum við ekki sinnt öllum sem við fáum beiðni fyrir innan ásættanlegs tímaramma. Við leggjum okkur fram um að nýta þau pláss og mannafla sem við höfum til umráða eins vel og unnt er.
Hvernig er forgangsraðað inn á geðsvið Reykjalundar?
Forgangsröðunina byggjum við á langri reynslu á því sem líklegt er að skili árangri í endurhæfingu. Á biðlistanum eru margir sem aldrei hafa fengið endurhæfingu hjá okkur og því teljum við það skyldu okkar að veita sem flestum það tækifæri. Við höfum því tekið upp þá meginreglu að fjögur ár líði milli innlagna.
Eins og fram hefur komið höfum við einkum sérhæft okkur í endurhæfingu þeirra sem eiga við þunglyndi og kvíða að stríða. 
Við reynum að bregðast eins fljótt og kostur er við beiðnum fyrir ungt fólk sem ekki nær að fóta sig í lífinu og þá sem eru að falla út af vinnumarkaðnum eða ná ekki að sinna mikilvægum hlutverkum, svo sem uppeldi barna. Áður en ákvörðun er tekin um innlögn er reynt að boða einstaklinginn í forviðtal þar sem lagt er faglegt mat á hvort þau meðferðartilboð sem í boði eru hjá okkur henti viðkomandi.
Hvað er gert í forviðtali?
Í tengslum við forviðtalið fær sjúklingur eyðublað sem hann fyllir út, þar sem hann metur eigið heilsufar. Í viðtalinu er farið yfir þau heilsufarlegu vandamál sem viðkomandi vill vinna með á Reykjalundi og markmið sem hann setur sér. Hann fær einnig upplýsingar um hvers má vænta ef innlögn er ákveðin.
Við gerum þá kröfu að sá sem hefur átt við vímuefnavanda að stríða, sé búinn að vera án vímuefna í að minnsta kosti hálft ár, áður en hann kemur til okkar og jafnframt verið virkur í að vinna að heilbrigðu og vímulausu lífi. Sama gildir um lyfjaofnotkun eða lyfjamisnotkun.
Stefnt er að reykleysi á Reykjalundi og eru allir sem reykja hvattir til þess að nýta tækifærið til þess að hætta.
Þeir sem hafa spurningar um biðlistann eða finnst þeir þurfa að gefa okkur nýjar upplýsingar geta hringt til okkar á miðvikudögum milli kl. 9:00 og 10:00.