Hugmyndafræði endurhæfingar.
Meðferðin á Reykjalundi byggist á hugmyndafræði endurhæfingar þar sem teymisvinna sérhæfðs fagfólks er lögð til grundvallar. Markmiðið er að sjúklingar nái aftur eins góðri andlegri, félagslegri og líkamlegri færni og mögulegt er. Lögð er áhersla á að sníða meðferðina að þörfum sjúklinga og fer hún fram bæði í hópum og einstaklingsbundið. Markvisst er reynt að mæta þörfum sem flestra sjúklingahópa fyrir endurhæfingu og hafa Reykjalundur - endurhæfing, Endurhæfingardeild LSH við Grensás og Heilsustofnun NLFÍ gert með sér samkomulag um samstarfsráð um endurhæfingu, sem síðast var endurskoðað árið 2004. Hér má sjá yfirlit yfir verkaskiptingu endurhæfingarmiðstöðvanna frá 15. október 2004.