Atvinnuleg endurhæfing
Út á vinnumarkaðinn eða í nám
Höfuðmarkmið atvinnulegrar endurhæfingar á Reykjalundi er að hjálpa fólki út á vinnumarkaðinn eftir veikindi og slys. Oft þarf að beina fólki í nám svo það hafi forsendur til að fá vinnu við hæfi. Í byrjun er því mikilvægt að kanna áhuga, getu, menntun og starfsreynslu, ásamt því að skoða færniskerðinguna, þ.e. að skoða takmarkanir og tækifæri. Andleg og líkamleg færni er metin, endurhæfing skipulögð og meðferð veitt ef á þarf að halda. Unnið er bæði einstaklingsbundið og í hópum.
Mikil áhersla er á fræðslu og kennslu ásamt því að bæta líkamsvitund og vinnustellingar. Vinnulag er kannað, einnig áhugamál og reynt er að auka vinnuþol, styrk og úthald, með fræðslu, æfingum og vinnuprófun, bæði innan staðar og utan. Einnig er lögð áhersla á vinnuaðlögun, þar sem athugað er hvort hægt sé að breyta vinnuumhverfi, vinnutíma og vinnuferli. Skjólstæðingurinn er aðstoðaður við að setja sér raunhæf markmið miðað við færni og getu. Stefnt er að vinnu við hæfi á hinum almenna vinnumarkaði. Gott samstarf við atvinnulífið og mennta- og fræðslustofnanir er því mikilvæg undirstaða.
Veittur er stuðningur við atvinnuumsóknir og athugun á vinnumarkaði. Eftirfylgd er veitt í nokkra mánuði eftir útskrift, til að aðstoða við fyrstu skrefin í námi eða vinnu. Teymismeðlimir skipta með sér verkum varðandi upplýsingaöflun til að forðast tvíverknað. Starfsemin er rekin á dagdeildarformi. Möguleiki er á dvöl á sjúkrahóteli fyrir þá sem eiga langt til síns heima.
Atvinnuleg endurhæfing er rekin samkvæmt þjónustusamningi við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Mikil þróunarvinna er stöðugt í gangi á þessu meðferðarsviði á Reykjalundi, sem byggist á hugmyndafræði sem var grunnurinn að stofnun Reykjalundar á sínum tíma, þ.e. að aðstoða fólk við að fá vinnu við hæfi og þannig að „styðja sjúka til sjálfsbjargar“.